Hoppa yfir valmynd

Streymisfundur í dag um Ræktum Ísland! umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, býður til opins streymisfundar um Ræktum Ísland!, umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, miðvikudaginn 5. maí kl. 09:30.

Á fundinum verða einnig Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, og Hlédís H. Sveinsdóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri, en þau skipa verkefnisstjórn um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland og hafa nú skilað tillögum sínum til ráðherra sem kynntar verða á fundinum.

Tillögurnar eru liður í mótun stefnunnar og er ætlunin að nýta umræðuskjalið við frekara samráð og í framhaldinu endanlega útfærslu landbúnaðarstefnu fyrir Ísland.

Fundinum verður streymt á Facebook (sjá hér) og á Youtube: 

 

Tags

17. Samvinna um markmiðin

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics