Hoppa yfir valmynd

Matvælaráðherra heimsótti kúabændur á Suðurlandi

F.v.: Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir formaður frá Stóru-Mörk 3, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Bóel Anna Þórisdóttir meðstjórnandi frá Móeiðarhvoli og Borghildur Kristinsdóttir meðstjórnandi frá Skarði í Landssveit.    - myndDL

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra heimsótti nýverið kúabúið á Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum.
Við það tækifæri hitti ráðherra stjórn félags kúabænda á Suðurlandi sem er skipuð þremur konum, þeim Aðalbjörgu Rún Ásgeirsdóttir frá Stóru-Mörk 3, Bóel Önnu Þórisdóttur frá Móeiðarhvoli og Borghildi Kristinsdóttir frá Skarði í Landssveit.

Stjórn félagsins ræddi ýmis málefni kúabænda við ráðherra s.s. afkomu kúabænda, búvörusamninga og samkeppnishæfni bænda gagnvart innflutningi.

„Heimsókn á borð við þessa og þær umræður sem henni fylgdu í kjölfarið er nokkuð dýrmæt“ sagði matvælaráðherra. „Þarna gafst kostur á að ræða þau málefni sem brenna á kúabændum en stéttin hefur þurft að takast á við aukna byrðar síðustu misseri líkt og margir landsmenn. Það er á ábyrgð okkar kjörinna fulltrúa að leggja við hlustir þegar kostur gefst og nýta sem best það sem við heyrum og skynjum við slík tækifæri“.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics