Ísland í heiðurssæti á Boréales menningarhátíðinni í Frakklandi
Fullt var út að dyrum á opnunarviðburðinum þar sem heiðursgestur hátíðarinnar, forsetafrú Íslands, Eliza Reid, fjallaði um bókina sína Sprakkar sem kom nýverið út í franskri þýðingu, og tók þátt í umræðum um kynjajafnrétti. Sendiherra Íslands, Unnur Orradóttir Ramette, flutti opnunarávarp ásamt fulltrúum stjórnvalda og listrænum stjórnanda hátíðarinnar, Jérôme Rémy.
Fjöldi íslenskra listamanna kemur fram á hátíðinni, þ. á m. rithöfundarnir Fríða Ísberg, Halldór Armand Ásgeirsson, Auður Ava Ólafsdóttir, Ragnar Jónasson, Yrsa Sigurðardóttir, Andri Snær Magnason, Torfi Túliníus, Guðmundur Felix Grétarsson, Nína Björk Jónsdóttir, Edda Magnus, Örvar Þóreyjarson Smárason, Sigrún Pálsdóttir og Lilja Sigurðardóttir. Les Boréales hefur gegnt mikilvægu hlutverki í að kynna íslenskar bókmenntir í Frakklandi og íslenskudeild háskólans í Caen menntað þá frönsku þýðendur sem gegna nú lykilhlutverki í vinsældum íslenskra bókmennta í Frakklandi.
Tónlistarfólkið Ásgeir, Árný Margrét, JFDR, Jóhannes Birgir Pálmason, Hálfdán Ákason, Hannes Helgason, jasstónlistarkonan Sunna Gunnlaugs og hljómsveitirnar GusGus og FM Belfast standa fyrir tónlistardagskrá hátíðarinnar. Þá verða íslensku kvikmyndirnar Hvítur, hvítur dagur, Þrestir, Bergmál og Lói - þú flýgur aldrei einn sýndar, auk þess sem kvikmynd Ninnu Pálmarsdóttur, Tilverur, er forsýnd í Frakklandi á hátíðinni.
Í samstarfi við bæjaryfirvöld í Caen fá bæjarbúar að njóta íslenskrar matargerðar víða um borgina á næstu dögum. Í kvöld mun meistarakokkurinn Friðrik Sigurðsson ríða á vaðið í einu fallegasta ráðhúsi Frakklands með íslensku hráefni. Þar munu gestir fá að bragða á fiskisúpu og eftirréttum úr Ísey skyri.
Fjöldi annara viðburða og kynninga á íslenskri menningu, landi og þjóð, verða á dagskrá í Caen í nóvember, m.a. sýning heimildamynda, fræðsludagskrá, fyrirlestrar og ljósmyndasýningar. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast hér.