Streymt frá kynningu á skýrslu um eflingu kornræktar
Skýrsla sem unnin var af Landbúnaðarháskóla Íslands um eflingu kornræktar verður kynnt á opnum fundi á Hilton Reykjavík Nordica kl. 11, miðvikudaginn 15. mars.
Lögð er fram aðgerðaáætlunin í 30 liðum í skýrslunni og eru meðal annars gerðar tillögur um sérstakan stuðning við kornrækt, bæði við framleiðslu og fjárfestingar í nauðsynlegum innviðum. Markmið verkefnisins var einnig að kanna fýsileika kornsamlags og skilgreina þarfir á lágmarksbirgðum kornvöru í landinu.
Fylgjast má með streymi frá fundinum hér.
Tags
Heimsmarkmiðin
12. Ábyrð neysla og framleiðsla
17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
9. Nýsköpun og uppbygging
2. Ekkert hungur