Hoppa yfir valmynd

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið veitir slíka styrki til eins árs í senn. 

Við úthlutun er horft til þess hvort;

  • verkefni hafi gildi og mikilvægi fyrir jafnréttismál,
  • verkefni búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hafi skýr markmið og mælikvarða.

Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutun má finna í úthlutunarreglum.

  • Umsóknarfrestur er til miðnættis 25. október 2024.
  • Sótt er um í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
  • Hver einstakur styrkur getur numið að hámarki tveimur milljónum króna. 
  • Heildarupphæð til ráðstöfunar haustið 2024 er 10.000.000 kr.

Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrest eða sem berast með öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga, einstaklinga, að þeim undanskildum sem sækja um styrk vegna doktorsverkefna, rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða. Til að umsókn verði tekin gild skulu henni fylgja þær upplýsingar og gögn sem óskað er eftir á umsóknarvef.

Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum gegnum netfangið frn@frn.is

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics