Umsóknarfrestur um styrki til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum framlengdur til 3. júní 2022
Matvælaráðuneytið vekur athygli á að umsóknarfrestur vegna styrkja til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum í landbúnaði hefur verið framlengdur til 3. júní næstkomandi.
Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.
Sækja ber sérstaklega um styrki í garðyrkju skv. ákvæðum reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020. Í öðrum landbúnaði er sótt um styrki samkvæmt ákvæðum reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 430/2021.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 3. júní (www.afurd.is). Á Afurð má einnig finna upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn.
Tags
Heimsmarkmiðin
12. Ábyrð neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur