Þátttaka sendiherra og forsetafrúar á fjárfestingastefnunni MIPIM í Cannes
Eliza Reid forsetafrú opnaði annan hluta dagskrár þar sem kynnt voru tækifæri við Keflavíkurflugvöll með Kadeco. Þá tók hún þátt í tveimur pallborðsumræðum og blaðaviðtölum um stöðu kvenna í byggingageiranum og atvinnulífinu almennt.
Sendiráðið í samstarfi við Fransk-íslenska viðskiptaráðið (FRÍS) og Íslandsstofu skipulagði heimsókn í tæknigarðinn Sophia Antipolis með fulltrúum landshlutasamtakanna (o.fl.). Þar gafst hópnum tækifæri til að kynna sér sögu og starfsemi tæknigarðsins sem er stærstur sinnar tegundar í Evrópu. Mikill áhugi var á báða bóga að stofna til virks samstarfs við vísinda- og tækniþenkjandi klasa og fyrirtæki á Íslandi. FRÍS hefur nú opnað fyrir skráningu á heimsókn til Sophia Antipolis dagana 4.-5. júní 2024. Sjá nánar á vefsíðu Fransk-íslenska viðskiptaráðsins.