Hoppa yfir valmynd

Styrkir til grunnnáms í listdansi fyrir árið 2023

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki vegna grunnnáms listdansskóla fyrir árið 2023. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Þeir skólar sem geta sótt um styrk þurfa að kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Heildarstyrkfjárhæð er 14,6 m.kr. sem mun skiptast niður eftir heildarfjölda nemenda þeirra skóla sem sækja um styrk og uppfylla fyrrgreint skilyrði.

Með umsókn skal fylgja greinargerð um fyrirkomulag og aðstöðu til kennslu, fjölda nemenda í grunnnámi í listdansi, faglega getu og fjárhagslega stöðu.

Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði á vef ráðuneytisins.

Umsóknir eru sendar til [email protected] og er umsóknarfrestur til og með 1. júní.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics