Staða náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum
„Í skýrslunni koma fram mjög gagnlegar upplýsingar og tillögur um úrbætur sem við nýtum meðal annars í aðgerðaáætlun nýrrar menntastefnu. Náms- og starfsráðgjafar gegna mikilvægu hlutverki í íslenskum grunnskólum, einkum þegar kemur að árangri, vellíðan og markmiðasetningu nemenda – sem og við að veita þeim leiðsögn um námsleiðir. Okkur er í mun að kraftar þeirra nýtist sem best, og því er þessi skýrsla kærkomið innlegg,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Skýrsla: Staða náms og starfsráðgjafar í grunnskólum.