Hoppa yfir valmynd

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2017

Hópmynd af öllum tilnefndum til Foreldraverðlauna ásamt ráðuneytisstjóra, formanni dómnefndar og formanni Heimilis og skóla - myndMOTIV.JonS

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 22. sinn í gær við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu. Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytis ávarpaði samkomuna og afhenti verðlaunin ásamt Önnu Margréti Sigurðardóttur formanni Heimilis og skóla og Sigrúnu Eddu Eðvarðsdóttur, formanni dómnefndar.

Skíðaskóli Þelamerkurskóla hlaut Foreldraverðalun Heimilis og skóla 2017, verðlaun sem Dugnaðarforkur Heimilis og skóla hlaut Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir og hvatningarverðlaun voru veitt til samstarfs foreldrafélaga í Breiðholti og til verkefnisins Fróðir foreldrar, samstarf um foreldrafræðslu.

Sjá nánar um verðlaunahafa og verkefnin á vef Heimilis og skóla.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics