Hoppa yfir valmynd

Ísland í forgrunni hóps um sjálfbær orkuskipti

Ísland verður í forgrunni hóps sem beitir sér fyrir sjálfbærum orkuskiptum í þágu allra hinna heimsmarkmiðanna, með gagnsæjum og réttlátum hætti. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í gær þátt í alþjóðlegum fjarfundi um sjálfbæra orku og heimsmarkmiðin á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Með fundinum var átaki, til að lyfta hlut hreinnar orku við framfylgd heimsmarkmiðanna, ýtt úr vör.

Fjöldi aðila sem tengjast orkugeiranum, í víðum skilningi, koma að átakinu sem ná mun hámarki með ráðherrafundi í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn í 40 ár sem Sameinuðu þjóðirnar funda á svo markvissan hátt um orkumál.

Í máli sínu gerði Guðlaugur Þór grein fyrir reynslu Íslands af orkuskiptum og nýtingu sjálfbærrar orku í matvælaframleiðslu og sjávarútvegi. Þá kallaði ráðherra eftir auknum fjárfestingum á heimsvísu í hreinni orku.

Tags

7. Sjálfbær orka
8. Góð atvinna og hagvöxtur
17. Samvinna um markmiðin

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka

8. Góð atvinna og hagvöxtur

17. Samvinna um markmiðin

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics