Hoppa yfir valmynd

Gróska í námsgagnagerð

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ásamt Ernu Reynisdóttur framkvæmdastjóra Barnaheilla, sem hlutu styrk til þess að þróa fræðsluefni um forvarnir gegn kynferðisofbeldi.  - mynd
Fulltrúar þeirra 29 verkefna sem í ár hlutu styrki úr Þróunarsjóði námsgagna heimsóttu mennta- og menningarmálaráðuneytið í dag og miðluðu af reynslu sinni.

Þróunarsjóður námsgagna stuðlar að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik,- grunn- og framhaldsskóla með það að markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla. Í ár var alls 52,3 millljónum kr. úthlutað til verkefnanna.

Forgangsatriði þróunarsjóðs námsgagna fyrir árið 2021 voru:
• Námsefni er styður við heilsueflingu nemenda, andlega jafnt sem líkamlega heilsu.
• Námsgögn er styðja við aðlögun og íslenskunám innflytjenda
• Námsgögn sem miða að markvissri eflingu orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum. Sérstaklega er horft til frumkvöðlamenntunar og starfs-, iðn, og tæknináms.

Meðal þeirra verkefna sem hlutu styrki voru forritun í Python fyrir framhaldsskóla, alþjóðleg borgaravitund ungs fólks, útgáfa kennslubókar fyrir nýsköpunarhraðal framhaldsskólanna, efnisfræði málmiðna og kynfræðsluspilið Sleikur.

Í stjórn Þróunarsjóðs námsgagna sitja fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og Félags íslenskra framhaldsskóla auk fulltrúa ráðuneytisins.

Allir sem skrifa og útbúa námsefni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, s.s. kennarar, sjálfstætt starfandi fræðimenn og útgáfufyrirtæki, geta sótt um í sjóðinn.  Opnað verður fyrir umsóknir í desember næstkomandi og nánari upplýsingar má finna á vef Rannís sem annast umsýslu hans
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 2
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 3
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 4
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 5
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 6
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 7
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 8
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 9
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 10
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 11

Tags

4. Menntun fyrir öll

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics