Hoppa yfir valmynd

Breyting á lögum um meðhöndlun úrgangs til kynningar

Frumvarpið miðar að því að ýta undir bætta endurvinnslu úrgangs og draga úr myndun hans. - myndnorden.org

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs. Með frumvarpinu eru innleiddar Evróputilskipanir sem ætlað er að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis í því skyni að ýta undir bætta endurvinnslu úrgangs og draga úr myndun hans.

Komið er á skyldu til flokkunar og söfnunar fleiri úrgangstegunda en í núgildandi lögum og gert skylt að samræma flokkunarmerkingar á landsvísu. Jafnframt er lagt til að skylt verði að flokka byggingar- og niðurrifsúrgang á upprunastað.

Í frumvarpinu er áréttuð sú skylda að sveitarfélög og fyrirtæki sem safna flokkuðum úrgangi komi honum sannanlega til endurvinnslu. Þá eru lagðar til breytingar sem varða heimildir sveitarfélaga til innheimtu gjalds fyrir meðhöndlun úrgangs.

Umsögnum um frumvarpsdrögin skal skilað í Samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 16. janúar næstkomandi.

Frumvarp - breyting á lögum um meðhöndlun úrgangs í samráðsgátt stjórnvalda

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics