Ninna Pálmadóttir hlýtur verðlaun í Marseille fyrir bestu leikstjórn
Kvikmyndin Einvera í leikstjórn Ninnu Pálmadóttur var forsýnd í Frakklandi í Les Halles bíóhúsinu í París þann 1. apríl sl. Leikstjórinn var viðstödd forsýninguna og kynnti myndina fyrir fullum bíósal gesta. Una Jóhannsdóttir, staðgengill sendiherra, lét sig ekki vanta á forsýninguna.
Kvikmyndin tók í kjölfarið þátt í alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Music & Cinema 2024 sem haldin var í Marseille í síðustu viku. Ninna Pálmadóttir hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn á hátíðinni.
Sendiráðið óskar Ninnu hjartanlega til hamingju með verðlaunin!