Hoppa yfir valmynd

Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 144/2022, V. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2023-2024 skal skilað inn rafrænt á Afurð eigi síðar en 15. mars.

Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum.

Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 25. gr. reglugerðarinnar og eru vegna:

a. Nýframkvæmda
b. Endurbóta á eldri byggingum

Fylgiskjöl sem skila þarf með umsókn eru:

a. Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaráætlun með tímasettri verkáætlun.
b. Byggingarleyfi eða staðfesting byggingarfulltrúa um að byggingarleyfis sé ekki krafist vegna framkvæmdar.
c. Samþykktar teikningar ef við á.
d. Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics