Hoppa yfir valmynd

Opinn kynningarfundur um heilbrigðisstefnu til ársins 2030

 

Nýsamþykkt Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 boðar nýja tíma fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu.

Efnt var til opins kynningarfunda um nýsamþykkta heilbrigðisstefnu í Hofi á Akureyri 12. júní. Fjallað var um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Kallað hafði verið eftir stefnu í heilbrigðismálum hér á landi um árabil og hafa nokkrar atrennur verið gerðar að slíkri stefnumótun frá því að heilbrigðisáætlun sem samþykkt var á Alþingi árið 2001 rann sitt skeið árið 2010. Samþykkt stefnunnar markaði því tímamót.

Í meginatriðum snýst heilbrigðisstefnan um um hvernig skapa megi heildstætt heilbrigðiskerfi fyrir alla landsmenn sem tryggir sjúklingum samfellda þjónustu á réttu þjónustustigi þar sem saman fara gæði, öryggi, skilvirkni og hagkvæmni.

Fundurinn var í Hofi 12. júní og hófst kl. 17.00.

Dagskrá:

  • Kynning stefnunnar: Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
  • Sýn forstjóra: Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands
  • Sýn forstjóra: Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

Að loknu erindi hvers frummælanda gafst fundargestum kostur á að beina til þeirra fyrirspurnum. Eftir stutt kaffihlé voru pallborðsumræður.

  • Pallborðsumræður: Þátttakendur í pallborði auk frummælenda verða María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, Valdimar O. Hermannsson, bæjarstjóri á Blönduósi og Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Fundarstjóri: Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.

Fundurinn var öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Streymt var beint hér frá fundinum.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics