Hoppa yfir valmynd

Opinn streymisfundur um Mælaborð landbúnaðarins

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnir Mælaborð landbúnaðarins á opnum streymisfundi fimmtudaginn 8. apríl kl. 13. 

Stofnun mælaborðsins er hluti af samkomulagi ríkis og bænda við endurskoðun rammasamnings búvörusamninga en þar kemur fram að nauðsynleg þyki að hafa yfirsýn yfir framleiðslu, sölu og birgðir í landinu m.a. vegna fæðuöryggis og slíkur gagnagrunnur eykur gagnsæi.

Þá er mælaborðið liður í aðgerðaráætlun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að mæta áhrifum COVID-19 heimsfaraldurs á íslenskan landbúnað.

Hægt verður að fylgjast með fundinum hér: https://youtu.be/vxbPexD1GT8

Mælaborðið hefur mikið upplýsingagildi fyrir almenning, fjölmiðla, Alþingi og stjórnsýsluna. Það er sérstaklega gagnlegt fyrir stjórnvöld, bændur og samtök bænda, samtök atvinnurekenda, verkalýðsfélög, háskólasamfélagið og greiningaraðila.Stofnun mælaborðsins er hluti af samkomulagi ríkis og bænda við endurskoðun rammasamnings búvörusamninga en þar kemur fram að nauðsynleg þyki að hafa yfirsýn yfir framleiðslu, sölu og birgðir í landinu m.a. vegna fæðuöryggis og slíkur gagnagrunnur eykur gagnsæi.

 

Tags

17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

15. Líf á landi

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics